Færsluflokkur: Bloggar
Hvar eru þið konur?
Ég sé ástæðu til að birta nöfn þessara fjögurra kvenna sem ég þekki helmingin af, þ.e. a. s. þær tvær sem koma frá Akranesi.
Afhverju er Sjálfstæðisflokkurinn ekki bara með KARLAFRAMBOÐ?
Það er þá gengið hreint til verks.
Ég sá ástæðu til að birta nöfn þessara kvenna til að vekja athygli á því ófremdarástandi sem ríkir í þessu kjördæmi. KARLLÆGT í einu orði sagt.
Rannsókn óskast.
Birna Lárusardóttir - Ísafirði
Eydís Aðalbjörnsdóttir - Akranesi
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir - Tálknafirði
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir - Akranesi
.
17 fara fram í NV-kjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
23.2.2009 | 17:52
Fjármagn til meðferðar á karlmönnum
Það er komin tími á öfluga andstöðu kvenna til ríkisvalds vergna ofbeldis á konum og börnum á Íslandi. Hér er ekki hægt að horfa og hlusta nær dag eftir dag á fréttir þessa efnis um barsmíðar á konum með börnin sem áhorfendur eða jafnvel þolendur ofbeldis.
Ef karlarnir geta ekki tekið á þessum ósóma meðbræðra sinna verða konurnar að gera það.
Hér voru það karlar sem ruddu brautina til hjálpar áfengissjúkum meðbræðrum sínum og ættu að sjá sóma sinn í að ryðja brautina gegn ofbeldi á konum og börnum!
Þessa "karla" þarf að taka í meðferð og byggja upp forvarnir.
Hvað verður um þessa karla þegar þeir koma út úr fangelsunum? Byrja þeir aftur að berja?
Við höfum ekkert að gera með fólk í fangelsi sem ekki er hægt að hjálpa.
Ég treysti konum til að taka á þessum málum, þess vegna þarf að hugsa það vandlega að það er engum til hagsbóta að hafa tvo þriðju karlmenn inni á Alþingi - við þurfum fleiri konur á þing.
Hrottaleg árás og einbeittur vilji | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.2.2009 | 11:52
Ekki skrýtið...
að Slumdog Millionaire sópi að sér verðlaunum á Vesturlöndum, þetta er annar heimur og tími til komin að gera honum einhver skil í kvikmynd á Hollywood kvarðanum svo að sem flestir sjái og fræðist um þá gífurlegu eymd sem ríkir í Indlandi meðal barna og kvenna.
Myndin er s.s. frábær og ættu allir sem ætla í bíó að hugsa sig tvisvar um og taka þessa fram yfir aðrar.
Slumdog Millionaire heldur áfram sigurgöngu sinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.1.2009 | 11:46
Til hamingju Björgvin
Nú er vonandi komin hreyfing á ábyrgð valdhafa og kannski bara, sko "kannski" verður hægt að skipuleggja og búa til hugmyndir þar sem fólkið í landinu verði virkara í ákvarðanatökum valdhafanna sem við kjósum.
En nú á það allt eftir að koma í ljós hvort landslýður er eins tilbúin að axla ábyrgð með nýjum valdhöfum eins og kallað hefur verið eftir eða hvort þessi kreppa leiði eingöngu yfir sig röð mótmæla og þ.a. l. stjórnmálakrísu?
Sjálf hef ég trú á einskonar sáttarstjórn með fólki innanborðs sem hefur þekkingu og getu til að takast á við þetta fyrirtæki okkar Ísland og það verði allir íslendingar hluthafar og hluthafafundir haldnir og arðurinn borgaður út.
Gerum Ísland sérstakt, ólíku öllu öðru í heiminum og vinnum að sjáfbærni með bland af reisn, viðkvæmni, fínleika, fegurð, ást og síðast en ekki síst umhyggju.
Björgvin segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.1.2009 | 06:50
SORGLEGT
Eitt orð er öðru sterkara í þessum aðstæðum, það er: "SORGLEGT.
Ég vona að við berum gæfu til að taka á þessu eftir þennan hrylling eins og hugmyndin um það hvernig fólk á að hegða sér, þetta er farið að minna óheyrilega á borgarastríð.
Þetta er ekki það sem við þolum á allt það sem undan er gengið - má ég biðja um frið og að stjórnvöld drífi sig burtu strax - bloði drifin slóð er ekki það sem ég vænti við stjórnarslit.
Táragasi beitt á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.1.2009 | 23:28
PALESTÍNA - PALESTÍNA - PALESTÍNA - PALESTÍNA - PALESTÍNA -
Hvet alla að greiða inn á þennan neyðarreikning til kaupa á lyfjum og öðrum vörum til sjúkrahúsa í Palestínu.
Bankanr.: 0542-26-6990,kt.520188-1349, merkt "PHR-Gaza
Vibbinn er meir en ég þoli veit ekki um ykkur?
Sá gott kort í dag af Palestínu eins það var fyrir Ísrael og svo hvernig það hefur þróast í gegn um árin frá því landnemarnir fengu landið m.a. frá okkur. Nú er land Palestínu nokkrir punktar á kortinu!
Neyðarsöfnun fyrir Gaza | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.12.2008 | 13:58
Leggið peninga á borðið og labbið út
Það er hægt að styrkja Björgunarsveitirnar í landinu með því að afhenda peninginn og labba út. Hvernig væri að eiga hljóðlátt Gamlárskvöld og mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu í hljóði?
Það er ekki þannig að ég hugsi ekki um smáfólkið, þau geta fengið eitthvað fyrir sig. Annars ætti bara að vera flugeldasýning á Gamlárskvöldi eins og á menningarnótt og í hverju sveitarfélagi fyrir sig.
Nýjar hugmyndir að fjársöfnun fyrir björgunarsveitirnar og virkja fólkið til hjálpar!
Bíddu, hvernig ætli þær hafi ávaxtað peningana sína?
Ég er alveg sammála Jóni Magnússyni f.v. formanni Neytendasamtakanna það sem haft er eftir honum hér: http://visir.is/article/20081228/FRETTIR01/394449519
Drekka minna - skjóta meira | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
23.12.2008 | 14:08
ÞORLÁKUR...
...hinn helgi Þórhallsson biskup í Skálholti (1178 - 1193) var tekin í dýrlingatölu á Íslandi 1198. Eini Íslendingurinn sem útnefndur hefur verið verndardýrlingur Íslands frá páfastóli af Jóhannesi II árið 1985.
Dagurinn í dag er dánardægur Þorláks en Þorláksmessa að sumri er 20 júní og var lögleiddur tugum ára eftir lát hans og var einn mesti hátíðsdagur Íslendinga fyrir siðaskipti.
Skyldi nú skatan hafa orðið hefðarmatur Vestlendinga til höfuðs honum?
Jólakveðjur til allra bloggvina minna.
Gleðileg jól
og farsælt 2009 eða þannig!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
18.12.2008 | 23:39
Bjargvætturinn
Það er óþolandi að fara inn á bloggið um þessar mundir. Kreppan verkar eins terapía fyrir skrifóða sjúklinga. Tortryggni, undirróður og hræðslu niðurtal hefur verið í hávegum.
Þessi frétt um staðfestingu á láni Færeyinga til Íslands var birt í hádeginu í dag og hafa aðeins þrír bloggað um þessa jákvæðu frétt - er það ekki fullmikil naflaskoðun á íslenskum bloggurum að minnast bókstaflega ekkert á það fallega, jákvæða og væmna til að lyfta upp andanum?
Þetta eru nú bara skitnar 300 milljónir danskra króna! Eða hvað heyrðist mér ekki einhver vera að segja það?
Kannski vantar auðmýktina, ekki skrýtið, hélt sjálf lengi að það orð "auðmýkt" væri bara notað í trúarlegri merkingu fyrir syndir manna.
Íslendingar, vinsamlegast sýnið auðmýkt.
Færeyska lánið staðfest á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.11.2008 | 00:17
Auðveldara er að vísa mönnum burt eða senda þá heim í skjóli okkar eigin vandamála
Það hefur vantað alla hefð og reisn hér á landi til að takast á við hælisleitendur sem hingað koma og upplýsingar og fréttir af þessu fólki hefur oftar verið uppfullar af tortryggni heldur en skipulögðu rannsóknarferli sem er jafnframt upplýst fyrir almenningi.
Að meðhöndla fólk sem leita hælis eins og glæpamenn er það sem situr eftir í minni almennings þegar upp er staðið. Nú er tækifærið að láta hælisleitendur finna til tevatnsins af því að "aumingja" Íslendingar eiga svo bágt núna!
Vill frekar deyja en snúa aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Feminístar
Grá Gautaborg og víðar
- Feminístar Steinunn frænka og fl.
Stjórnmálin
Alþingismenn, bæjar-og sveitarstjórnarmenn og áhugafólk
- Össur Varaformaður Samfylkingarinnar
- Oddný Sturludóttir Oddný er borgastjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar
- Ásta R. Jóhannesdóttir Samflokksmaður og gamall vinur
- Annna Kristín Gunnarsdóttir Skipar 3. sæti NV-landi fyrir X-S
- STEINUNN VALDÍS Feministi og pólitískur vinur
- http://
Fjölskylda
Börn, tengdabörn og barnabörn.
- Þór Birgisson Örverpið mitt.
- Sindri Birgisson Sonur minn, leiklistarneminn.
Bloggvinir
- jenfo
- jonaa
- kolgrima
- annaeinars
- krummasnill
- draumur
- heg
- ringarinn
- olapals
- christinemarie
- gudrunkatrin
- sunnadora
- helgamagg
- gisgis
- svanurg
- pallijoh
- olinathorv
- skordalsbrynja
- lillagud
- hlynurh
- siba
- fridust
- gurrihar
- rosa
- annriki
- heidathord
- ingolfurasgeirjohannesson
- ragnhildur
- gisliivars
- stormur
- ragnarfreyr
- jakobk
- hjolaferd
- ingasig
- reni
- arnalara
- alfholl
- fridaeyland
- soley
- toshiki
- korntop
- kallimatt
- saxi
- bryndisfridgeirs
- hugsadu
- astabjork
- kiddip
- skaftie
- thor
- huldam
- annaragna
- fjola
- kloi
- hronnrik
- manisvans
- brandarar
- truno
- vefritid
- samfo-kop
- para
- gattin
- adhdblogg
- tryggvigunnarhansen