Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Víkings maltöl

                                               

                                                          

Einn er sá drykkur sem mér þykir með eindæmum góður, það er maltöl. En það er ekki sama hvort það er Egils eða Víkings. Ég elska Víkings maltöl. Mér finnst það léttara til drykkju ekki eins þykkt og þungt og Egils maltölið.  Þetta fékk ég ekki vitneskju um fyrr enn fyrir ca þremur til fjórum kannski fimm árum. Mörgum finnst ég stórskrýtin að ganga framhjá Egils maltöli og hafa bæði mörg og stór orð um að Egill sé miklu betri, án þess að gera samanburð, einskonar trúbrögð. Það versta er að Víkingurinn er ekki til sölu nema á örfáum stöðum, nema fyrir jólin, þá er hann út um allt. Mér finnst gott að fá mér malt um helgar og ef ég ekki fæ Víkinginn sleppi ég því að kaupa maltið

Því miður finn ég ekki mynd af dósinni góðu - ef einhver finnur mynd af uppáhaldinu mínu viljið vera svo væn/vænn að senda mér hana!InLove


Íslenski skemmtiþátturinn rann aðeins betur í kvöld en fyrir viku, en ekki var hann

hnökralaus.

Lögin voru betri en síðast og ég kaus Magga Eiríks enda flutningur Pálma með ólikindum miðað við lengdartímabil reynslu í söngnum. Pálmi er náttla besti karldægurlagasöngvari sem við eigum. Stúlkan sem var með honum, Hrund held ég að hún heiti verður að æfa sig betur, kannski stress ekki óeðlilegt, mér fannst hún ekki alltaf halda lagi.

Edgar söng að vísu eins og venjulega eins og engill, lagið var fallegt og notalegt.

Hvað er Dr. Gunni alltaf að hugsa, lagið hans var fínt, en er það ekki fullmikið að yfirfæra leikskólalag yfir í Eurovision? Ég veit það ekki sjálf, einfeldni lagsins og útsetningin engin, bara svona demó! það er kannski bara fínt!

Í rauninni var Jón Gnarr bestur og lagið hans ætti að fara áfram.


Pissukallar/strákar/dúkkur

Mikið er ég fegin að lögreglan haldi við þessari eftirlitsferð sinni og venji menn á að pissa í klósett. Það versta er kannski að foreldrar þessara manna hefur gjörsamlega mistekist að venja þá á kopp eða klósett og ættu þeir því að vera með bleiu. Nú á tímum fást bleiur fyrir fullorðna í apótekum og ekkert vandamál fyrir þessa menn að setja á sig áður enn farið er í miðbæinn með pelana sína. Bleiur taka bæði við þvagi og saur, kannski verður þetta næsta regla eða lögreglusamþykkt að menn gangi með bleiur ef ekki er hægt að venja þá!Shocking
mbl.is Ellefu ákærðir vegna óviðeigandi hegðunar í borginni í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rigning, rigning, rigning...

Ég er orðin hundleið á þessari rigningu og flóðunum sem fylgja með þessa dagana!

 Hvað finnst ykkur?

Börnin í skólanum koma blaut inn í kennslustundir dag eftir dag og það lekur úr hárinu á þeim og svo eru þau holdvot í fætur og verða að bretta upp buxnaskálmum til að þau svíði ekki undan bleytunúningi.


Einn léttur Kalli Tomm!

Nú er það leikurinn og hann verður með léttara laginu - manneskja sem á að geta upp á hver er!

Góða skemmtun og mætið eins mörg og þið getið og viljið.


Doris Lessing

 

 442580A

Jamm þar kom að því, Doris komin með nóbelinn ekki bara elst allra kvenna sem hlotið hefur hann heldur elst allra. Nú fer maður á stúfana og skoðar eitthvað til að lesa eftir hana, hef aðeins lesið "Grasið syngur" held ég. Það eru til sjö bækur eftir hana í íslenskri þýðingu. kerlingin er rosa töffari og kann að rífa kjaft og svo er hún ansi krakkaleg á myndinni sem tekin var í morgun þótt hún sé orðin 87 ára.


mbl.is Lessing segist hafa fengið „verðlaunalitaröð"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurningaleikur KALLA

Ég spyr um manneskju?Police Wizard Whistling

Yoko Ono

Hafþór Yngvason forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur skrifar frábæra grein um Yoko í Lesbókinni um síðustu helgi. Hvergi hef ég séð eins góða og vandaða úttekt á hennar lífshlaupi sem sjálfstæðs einstaklings án þess að nudda henni sínkt og heilagt upp við John og Bítlana.

Það sem kom mér kannski mest á óvart er að hún á langt og strangt tónlistarnám á bakinu í klassískri tónlist. Hún var líka fyrst kvenna til að fá inngöngu í heimspekideild hins virta Gakushuin - háskólann í Tokýó, en hvarf frá námi, fannst það ekki heillandi - hver skilur það ekki þar sem nám hefur verið byggt og mótað fyrir karlmenn.

Hún fór til New York og lærði bókmenntir og ljóðlist og ílentist í borginni og fór að vinna með ýmsum framúrstefnulistamönnum. Hún gerði tilraunir með textalist sem voru "fyrirmælaverk" sem eru vel þekkt í dag.

Yoko hefur ætíð verið róttæk og tengt list sína við Zen-búddisma. Hún leggur út frá einfaldleika í list sinni en um leið er það sem er einfalt ekki endilega auðvelt.

Kannski var það ekki eins einfalt og sniðugt eins og mér fannst þegar Yoko braut postulínsvasann forðum hér á landi og afhenti viðstöddum brotin úr vasanum og vonaðist til að þau myndu hittast aftur hér og setja saman vasann! Ætli það hafi orðið? 

Hvet ykkur til að lesa greinina.


mbl.is Yoko Ono: Vonast til að börn finni huggun í ljósinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveitin og húsið sem langafi byggði

Fór á Snæfellsnesið í gærdag í heimsókn til tengdó. Haustlitirnir voru allsstaðar en oft hafa þeir verið skarpari, rigningin virðist eyðileggja mikið og auðvitað rokið í bland.

Gamalt hús 010

            Miðhraun í haustbúningi.

Ekki langt frá Miðhrauni er bær sem heitir Sel, þar er gamalt timburhús sem er að rigna niður sem var flutt þangað fyrir ca 15-20 árum að ég held frá Akranesi. Ég er nýbúin að komast að því að það hús byggði langafi minn sem byrjaði sinn búskap á Akranesi  en missti konuna sína frá fjórum börnum. Elst var amma mín sem var 8 ára  þegar mamma hennar dó, komin að því að fæða sjötta barn sitt, eitt hafði dáið lítið. Langamma dó 35 ára gömul og langafi flutti til Reykjavíkur og byggði annað hús í Þingholtunum þar sem ég bjó til 10 ára aldurs og svo síðar þegar ég byrjaði að búa.

Gamalt hús 025

 

 

 

 

 

 

 

Það var ungt fólk sem ætlaði að gera húsið upp og hefur verið búið að steypa undir það. En nú er það allt meira og minna laskað af veðri og vindum mikið opið inn það frá þakinu. Húsið hefur nafn en ég veit ekki hvaða nafn það er- nú hefst rannsókn á skjalsafni Akraness.

 

 

 

 

 

 

 

 


Í fyrsta lagi skil ég ekki nafnið Reykjavík

Energy Invest, afhverju enska? Í öðru lagi hvað þýðir "allt að 300 þúsund krónur að nafnverði á genginu 1,28" hver skilur þetta? Og í þriðja og síðasta lagi, afhverju samþykktu stjórnarmenn ekki 250% launalækkun fyrir stjórnarstörf?

Svar óskast.


mbl.is Samþykkt að endurskoða sölu á hlutabréfum í REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Edda Agnarsdóttir
Edda Agnarsdóttir
Veðrið og lund mín eiga lítið saman að sælda. Ég á mína þoku og blíðviðri inni í mér.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband